stitcherLogoCreated with Sketch.
Get Premium Download App
Listen
Discover
Premium
Shows
Likes
Merch

Listen Now

Discover Premium Shows Likes

Hismið hlaðvarp

155 Episodes

66 minutes | Jul 1, 2022
Lokadans Hismisins - Takk fyrir okkur!
Hismið þakkar fyrir sig og kveður eftir níu góð ár í loftinu. Í lokaþættinum, sem tekinn var upp í beinni í brugghúsinu Ægisgarði að viðstöddum 160 manns, förum við yfir upphafið, söguna, helstu rekstrartölur þáttarins, fáum til okkar góða gesti og gösum um ekkert í síðasti skipti. Takk fyrir okkur! (Hljóðið var að stríða okkur í fyrstu útgáfa þáttarins sem fór í loftið en það á að vera komið í lag - bestu kveðjur frá Tæknideildinni!) 
61 minutes | Jun 23, 2022
Hismið - Allt hey heim í hlöðu
Hismið mætir í síðasta sinn saman í höfuðstöðvum þáttarins og ræðir meðal annars um undirbúning live shows og lokaþáttinn í næstu viku. Farið er yfir vinnubrögð í unglingavinnunni, stöðuna á miðunum, hvalveiðar og árásir Sea Shepard samtakanna á hvalveiðaflota Kristjáns Loftssonar árið 1986. Grétar fer yfir kaup sín á Costco korti og greiningu á hrávörumarkaði og við förum yfir hvers konar alpha-hundar veljast í að vera formenn íþróttafélaga.
57 minutes | Jun 16, 2022
Hismið - Er stormur í aðsigi?
Í Hismi vikunnar tökum við vandaða 360 gráðu greiningu á efnahagslífinu, ræðum pólitíkina og væringar um formannsembætti Samfylkingarinnar, fáum stöðuna á undirbúningi Árna fyrir Laugavegshlaupið og greinum frá undirbúningi fyrir lokaþátt Hismisins sem tekinn verður upp í beinni.
60 minutes | Jun 9, 2022
Hismið - Stjórnmálin eru eins og gamanleikur
Hismið fær engan annan en Sigtrygg Magnason, hinn íslenska Kasper Juul, í settið og ræðir sigurgöngu Framsóknarflokksins að undanförnu og landslagið í pólitíkinni yfir höfuð, nekt, hlaup og jóga og kónginn í Boston.
46 minutes | Jun 2, 2022
Hismið - Hvítar tennur og skrifstofumannaaxlir
Í Hismi vikunnar förum við yfir ferð Grétars til meginlandsins, skrifstofumannaaxlir, tannhvíttunarferli Árna og meirihlutaviðræður í borginni.
75 minutes | May 19, 2022
Hismið - Odd(vit)aleikur í körfu og pólitík
Í Hismi vikunnar gerum við upp tvo stóra viðburði undanfarna viku - sveitastjórnarkosningarnar og oddaleik Vals og Tindastóls í körfubolta - með Atla Fannari Bjarkasyni fjölmiðlamanni. Við förum yfir stemminguna í Skagafirðinum, geitina í Val, meirihlutaviðræður og störukeppni flokkanna í fjölmiðlum, og meistara sem hjólaði í vinnuna á Selfoss úr Þingholtunum.
63 minutes | May 12, 2022
Hismið - Gamli skólinn snýr aftur
Í Hismi vikunnar förum við yfir kosningarnar á laugardaginn, kröfur sem við gerum á stjórnmálamenn, endurkomu hjá gamla skólanum og baráttu við kerfil í Litla Stokkhólmi.
55 minutes | May 5, 2022
Hismið - Hvor er glæsilegri - Dagur B eða Einar Þorsteins?
Í Hismi vikunnar byrjum við á tímamótayfirferð um veitingastaðaflóruna á Grandanum, förum svo yfir sveitastjórnarkosningarnar, besta íslenska bloggarann og starfslok hjá gamla skólanum.
66 minutes | Apr 28, 2022
Hismið - Mislæg gatnamót í Viðey
Í þætti dagsins er farið yfir bankasölu málið, sveitarstjórnarkosningar sem eru framundan og ítarlega útfærðar pælingar um að breyta Viðey í mislæg gatnamót og metnaðarfullan ríkisforstjóra sem er búinn að 2.0-væða Ríkiskaup og búa til nýja stefnumótun í formi geimflaugar. 
55 minutes | Apr 7, 2022
Hismið - Sjomlar á markaði og í Liverpool
Í Hismi vikunnar förum yfir rólega fréttaviku og gerum upp ummæli Sigurðar Inga og sjomla söluna á Íslandsbanka. Þá förum við yfir nýja loftbrú til Liverpool, 15 mínútna hverfið, hlaupahóp Árna og hugsanlegan nýjan feril Grétars.
59 minutes | Mar 31, 2022
Hismið - Að vera leiðinlega hamingjusamur
Í Hismi vikunnar förum við yfir leiðinlegasta fólk í heimi samkvæmt vönduðum rannsóknum, afstöðu kjósenda flokkana til borgarlínu og þéttingar byggðar,  og vöntun á þjónustu í nýjasta hverfi borgarinnar. Þá fáum við fréttir af undirbúningi Árna fyrir Laugavegshlaupið og flettum blöðum dagsins.
74 minutes | Mar 24, 2022
Hismið - Hvítur Monster í Eyjum
Í Hismi vikunnar förum við yfir atlögu að virðingu Alþingis, prófkjör í Eyjum þar sem Hismið lýsir í fyrsta sinn opinberlega yfir stuðningi við frambjóðenda, söluna á Íslandsbanka og stöðuna í Úkraínu. Þá fara umsjónarmenn yfir umdeildar myndir sem birtust af þeim á Smartlandinu í vikunni.
62 minutes | Mar 18, 2022
Hismið - Verðbólgin augu og lýðræðisveisla
Í Hismi vikunnar förum við yfir New York ferð Grétars, verðbólguna, hlaupaáskorun Árna, miðaldra hjólahóp sem festist á Spáni, lýðræðisveisluna sem prófkjörin eru og í hverju góð þjónusta felst.
72 minutes | Mar 11, 2022
Hvað heitir mamma hans Niki Lauta?
Hismismenn snúa aftur eftir stutta ferð í skíðabrekkurnar á meginlandið og kryfja upplifun Árna af sinni fyrstu skíðaferð, helstu slagarana af Aprés og mætingu umsjónarmanna í morgunmat. Þá er farið yfir stöðuna í Úkraínu, viðskiptatækifæri í Heiðarlegu Kauphöllinni og skærgræn hlutabréf í Andreas Tegnell, fyrrum sóttvarnalækni Svía.
63 minutes | Feb 24, 2022
Hismið - Rafbílaraunir og skyrbarsvæðingin
Í Hismi vikunnar er farið yfir stóra fréttaviku, afléttingar á sóttvörnum og innrás Rússa í Úkraínu með Karli Pétri Jónssyni, almannatengli. Endalok Dóra í Mjóddinni eru einnig krufin og Árni fer yfir það hvernig hlutabréfin í honum tóku stóra dýfu á dögunum.
65 minutes | Feb 10, 2022
Hismið - Hvernig verður sería tvö af Verbúð?
Í Hismi vikunnar förum við yfir nýtt #current ráðuneyti, áhugaverðar afléttingar, hvernig sería tvö af Verbúðinni gæti litið út, átökin í Eflingu og rekstrarumhverfið í Eyjum.
60 minutes | Feb 3, 2022
Hismið - Heiðarleiki og nýsköpun
Sóttvarnaráætlun Hismisins hefur verið virkjuð og vinnur tæknideild þáttarins enn eitt þrekvirkið í þætti vikunnar, en þar förum við yfir stöðu mála í faraldrinum, alvöru hagstjórn í Tyrklandi, bullandi vöruþróun hjá Sigga Royal, ákveðin hápunkt nýsköpunarsenunnar og stóra samlokumálið sem hefur legið þungt á Árna.
68 minutes | Jan 27, 2022
Fjárfestakynning Hismisins: Sigurður Orri Kristjánsson
Í Hismi vikunnar fáum við til okkar Sigurð Orra Kristjánsson, körfuboltaspeking, stjórnmálafræðing, landsbyggðamann og Vesturbæing, og förum yfir það helsta með okkar manni en það eru öll bréf græn í honum þessa dagana. Pólitíkin, meginlandið, landsbyggðin og handboltinn.
71 minutes | Jan 20, 2022
Handkastið snýr aftur. Og Hismið.
Hismið snýr aftur á nýju ári, og gerir upp brimrót síðustu viku þegar þátturinn féll óvænt niður. Þá förum við yfir handboltann, sem er aftur orðinn þjóðaríþrótt Íslendinga og óvæntan utandeildarferil Grétars, bæjarstjóramálin í kraganum, upprisu gingseng kóngsins, og uppáhald allra - Covid.
56 minutes | Dec 17, 2021
Jólabomba Hismisins
Jólabomba Hismisins í ár ber merki þess að umsjónarmenn eru að verða miðaldra; Mogganum er flett, Grétar segir frá aðild sinni að Skógræktarfélaginu og Árni ræðir um erfiða morgna í hundauppeldinu. Þá er athyglisverð auglýsing efasemdarfólks um sóttvarnir skoðuð sem og hinn strangheiðarlegi morgunmatur á Landspítalanum.
COMPANY
About us Careers Stitcher Blog Help
AFFILIATES
Partner Portal Advertisers Podswag Stitcher Studios
Privacy Policy Terms of Service Your Privacy Choices
© Stitcher 2023